Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,5% milli mánaða og var 199,5 stig í apríl sl. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði um 0,4% og hafði 0,1% áhrif á vísitöluna. Vísitala stóriðju lækkaði um 2,5% og hafði 0,9% áhrif á vísitöluna.
Framleiðsluverð fyrir matvæli hækkaði aftur á móti um 1,2% og hafði 0,2% áhrif á vísitölu en vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,6 prósentustig og hafði 0,3% áhrif á vísitöluna.
Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,5% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,3%.
Miðað við apríl 2015 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 10,4% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 6,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 23,8% en verð á matvælum hækkað um 4,6%.