Daniel Niddam tók í byrjun júní við stöðu sölu- og markaðsstjóra í Evrópu hjá Sæplast Iceland. Daniel er viðskiptafræðingur að mennt og starfaði áður sem sölu- og markaðsstjóri hjá Skaganum-3x Technology í fjögur ár og þar áður var hann viðskiptastjóri hjá Marel í tíu ár.
Meginverkefni Daniels verður að leiða áframhaldandi markaðssókn fyrirtækisins bæði innanlands og erlendis og að styrkja ímynd Sæplasts. Daniel Niddam er uppalinn í Frakklandi en hefur búið á Íslandi í 25 ár. Hann er kvæntur íslenskri konu og saman eiga þau þrjú börn.
Daniel tekur við starfi sölu- og markaðsstjóra af Hólmari Svanssyni sem nú hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Sæplast Iceland ehf. af Daða Valdimarssyni en Daði er í dag framkvæmdastjóri hverfissteypudeildar RPC group, móðurfyrirtækis Sæplasts.