Fullt af hugmyndum en lykillinn er reksturinn

Birgir Þór Bieltvedt
Birgir Þór Bieltvedt mbl.is/Árni Sæberg

„Fólk getur verið með fullt af góðum hugmyndum en lykillinn er reksturinn. Í veitingabransanum snýst þetta mjög mikið um stöðugleika,“ segir Birgir Þór Bieltvedt sem á undanförnum árum hefur látið mjög að sér kveða í veitingarekstri hér á landi og erlendis.

Eftir að hafa meðal annars átt þátt í því að endurskipuleggja rekstur Magasin du Nord í Kaupmannahöfn og sett af stað Domino's Pizza í Þýskalandi, sneri Birgir heim nokkru eftir efnahagshrun og keypti ásamt fjárfestum rekstur Domino's á Íslandi.

Í ViðskiptaMogganum í dag rekur Birgir uppbyggingu fyrirtækja í kringum rekstur vinsælla veitingastaða sem telja meðal annars Joe & the Juice, Gló, Snaps, Brauð & Co, Jómfrúna og nú síðast Café Paris og væntanlegan Hard Rock Café-veitingastað í Lækjargötu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK