Apartnor ehf., undir forystu Íslenskra fasteigna ehf., hefur fest kaup á 80% hlutafjár í Kolufelli ehf., sem er lóðarhafi og eigandi byggingaréttar að Austurbakka 2 í Reykjavík. Apartnor ehf. er félag á vegum Eggerts Dagbjartssonar og Hreggviðs Jónssonar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.
Seljendur eru Arion banki og félög í eigu Mannvits og T.ark Arkitekta.
„Kolufell hefur þegar hafið framkvæmdir á lóð félagsins á svokölluðum Hörpureit í miðborg Reykjavíkur. Á lóðinni, sem er staðsett milli Geirsgötu og fyrirhugaðrar hótelbyggingar við hlið Hörpu, mun rísa vandað íbúðar- og verslunarhúsnæði og nemur heimilað byggingarmagn á lóðinni alls um 15.600 fermetrum. Áætlað er að framkvæmdum ljúki innan þriggja ára.
Íslenskar fasteignir ehf., sem er ráðgjafa- og fjárfestingafélag á sviði fasteignaþróunar, mun leiða verkefnið fyrir hönd Apartnor ehf, í samstarfi við T.ark Arkitekta og Mannvit. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Kolufells,“ segir í tilkynningunni.