OR hagnaðist um fimm milljarða

Árshlutareikningur samstæðu OR 2016 var samþykktur af stjórn fyrirtækisins í …
Árshlutareikningur samstæðu OR 2016 var samþykktur af stjórn fyrirtækisins í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Á fyrri helmingi ársins 2016 skilaði rekstur Orkuveitu Reykjavíkur 5 milljarða króna hagnaði. Á sama tímabili 2015 var 2,3 milljarða króna hagnaður. Í tilkynningu frá OR segir að viðvarandi sparnaður í rekstri og hagstæð gengisþróun eigi þátt í bættri afkomu. Þá hefur launakostnaður hækkað í samræmi við nýlega kjarasamninga en nettó vaxtaberandi skuldir lækkuðu um 9 milljarða króna.

Árshlutareikningur samstæðu OR 2016 var samþykktur af stjórn fyrirtækisins í dag.

Snemma árs 2011 samþykktu stjórn OR og eigendur fyrirtækisins sérstaka áætlun, vegna bágrar fjárhagsstöðu, sem kölluð er Planið, og nær til ársloka 2016. „Meginmarkmið þess var að bæta sjóðstöðu fyrirtækisins um rúma 50 milljarða króna á tímabilinu. Því marki var náð strax um mitt síðasta ár. Í lok júní 2016 nam árangurinn 57,1 milljarði króna. Planið fól meðal annars í sér verulegan og varanlegan sparnað í rekstri og að gjaldskrár héldu verðgildi sínu á gildistíma þess. Þær höfðu rýrnað verulega á árunum í kringum fjármálahrunið. Eigendur OR ákváðu einnig að á gildistíma Plansins yrði ekki greiddur arður af rekstri OR,“ segir í fréttatilkynningu.

Lækkar gjald fyrir rafmagnsdreifingu og kalt vatn

Um næstu áramót sjá Veitur, dótturfyrirtæki OR sem sér um veiturekstur samstæðunnar, fram á að lækka gjaldskrár fyrir rafmagnsdreifingu og kalt vatn. Miklar fjárfestingar í fráveitum og hitaveitum munu ekki leyfa lækkun á þeim gjaldskrám. Veitur sjá um rafmagnsdreifingu frá miðjum Garðabæ í suðri til Akraness í norðri og þjóna um helmingi landsmanna. Vatnsveitur Veitna eru í fimm sveitarfélögum og þjóna um 40% landsmanna.

„Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaganna gengur prýðilega. Þjónustan er traust, afkoman er góð, skuldir að minnka og fjárhagurinn allur að styrkjast. Það er ákaflega gleðilegt að góður árangur í rekstrinum geri okkur fært að lækka gjaldskrár strax við lok Plansins. Þannig munu viðskiptavinir njóta þess mikla árangurs sem náðst hefur. Við gerð áætlana fyrir næstu ár munum við meta hvort þau fjárhagslegu skilyrði sem eigendur OR settu fyrir arðgreiðslum verði uppfyllt. Reykjavíkurborg, Akranes og Borgarnes stóðu þétt við bakið á fyrirtækinu í þeim þrengingum sem það rataði í og tímabært að eigendurnir njóti ávaxtanna,“ er haft eftir Bjarna Bjarnasyni, forstjóra OR, í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK