Berglind til AZAZO

Berglind Ósk Guðmundsdóttir.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir hefur hafið störf á ráðgjafasviði AZAZO. Áður starfaði Berglind hjá KPMG og er sérsvið hennar stjórnarhættir fyrirtækja (corporate governance). Hún hefur aðstoðað fjölmörg fyrirtæki við að bæta stjórnarhætti sína, var ritstjóri Handbókar stjórnarmanna og hefur annast fræðslu fyrir stjórnarmenn. Berglind lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2005 og fékk réttindi til að vera héraðsdómslögmaður (hdl.) árið 2008, samkvæmt fréttatilkynningu.

AZAZO er hugbúnaðar- og þekkingarfyrirtæki sem hefur meðal annars þróað stjórnarvefgáttina AZAZO BoardMeetings.

Berglind mun vinna við þróun stjórnarvefgáttarinnar ásamt því að koma að þróun og innleiðingu annarra lausna AZAZO.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK