Nýir framkvæmdastjórar hjá RB

Aðalgeir Þorgrímsson sinnti áður starfi forstöðumanns Vörustýringar en verður nú …
Aðalgeir Þorgrímsson sinnti áður starfi forstöðumanns Vörustýringar en verður nú framkvæmdastjóri Sérlausna

Tveir nýir framkvæmdastjórar taka til starfa hjá Reiknistofu bankanna 1. október en það eru þeir eru þeir Aðalgeir Þorgrímsson sem áður sinnti starfi forstöðumanns Vörustýringar en verður nú framkvæmdastjóri Sérlausna og Jón Helgi Einarsson sem áður var forstöðumaður Verkefnastýringar verður nú framkvæmdastjóri Kjarnalausna.

Þá mun Guðjón Steingrímsson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs, láta á störfum og fara á eftirlaun sama dag.

Í fréttatilkynningu frá RB segir að nýtt skipulag muni taka þar við 1. október og er það gert í kjölfar endurskoðaðrar stefnu félagsins.  segir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB.

„Helstu markmiðin með nýju skipulagi er að setja aukna áherslu á þarfir viðskiptavina sem og að efla þróun og nýsköpun. Ábyrgð á tekjum og afkomu verður dreifðari og áhersla á aukna hagkvæmni og öryggi reksturs tryggt með öflugum stoðsviðum.  Einnig er í nýju skipulagið horft til þess að RB er þessa dagana að innleiða ný kjarnakerfi fyrir innlánastarfssemi og greiðslur, en kerfin verða megin burðarlag viðskiptabankastarfssemi á Íslandi.  Nýtt skipulag er liður í undirbúning félagsins á því á að kerfin verði tekin í notkun í byrjun næsta árs,“ er haft eftir Friðriki Þór Snorrasyni, forstjóra RB.

Nýtt skipulag samanstendur af þremur lausnasviðum Sérlausnum, Kjarnalausnum og Rekstrarlausnum, sem bera ábyrgð á tekjum og afkomu félagsins, og þremur stoðsviðum Tæknistjórn, Fjármála- og verkefnastjórn og Mannauðs- og markaðsstjórn.

Jón Helgi Einarsson var áður forstöðumaður Verkefnastýringar verður nú framkvæmdastjóri …
Jón Helgi Einarsson var áður forstöðumaður Verkefnastýringar verður nú framkvæmdastjóri Kjarnalausna.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK