Í fyrsta sinn frá árinu 2001 hafa árstekjur bandaríska tæknirisans Apple lækkað milli ára. Fréttavefur Wall Street Journal greinir frá því að síðastliðinn þriðjudag hafi Apple tilkynnt þriðju tekjulækkunina í röð milli ársfjórðunga.
Lækkunin á síðasta ársfjórðungi nemur níu prósentum og má rekja ástæðuna til dræmrar sölu á iPhone-tækjunum, sem hefur minnkað um fimm prósent á einu ári. Hlutabréf í Apple féllu um 1,5% í kjölfar tilkynningarinnar.
Apple er enn arðbærasta fyrirtækið í Bandaríkjunum og skilaði 45,7 milljarða dollara hagnaði á liðnu reikningsári.
Forstjórinn Tim Cook telur að þróun á þjónustusviði og kynning á nýjustu iPhone-vörulínunni boði gott fyrir komandi ársfjórðung, en sala á iPhone myndaði 63% af tekjum fyrirtækisins á reikningsárinu.