Hekla hf hefur innkallað 39 Audi Q7-bifreiðar með sjö sætum, sem framleiddar voru frá janúar 2015 til júlí 2016. Ástæða innköllunar er sú að aftasta sætaröðin getur færst til við árekstur. Lagfæring felst í því að bæta styrkingu við öftustu sætaröðina.
Í frétt á vef Neytendastofu kemur fram að á Íslandi séu 39 bílar sem falla undir þessa innköllun og verður eigendum þeirra sent bréf vegna hennar.