Hagnaður Sjóvár á fyrstu níu mánuðum ársins nam 1,57 milljörðum króna. Hagnaðurinn á þriðja ársfjórðungi ársins var 858 milljónir króna. Forstjóri félagsins segir afkomuna góða og helgast fyrst og fremst af ágætum fjárfestingartekjum.
Hagnaður félagsins á ársfjórðungnum af vátryggingastarfsemi fyrir skatta var 396 milljónir króna en 536 milljónir af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta.
Ávöxtun eignasafns félagsins var 2,2% og var hún umfram væntingar.
„Afkoma þriðja ársfjórðungs er góð, sem helgast fyrst og fremst af ágætum fjárfestingartekjum. Vátryggingarekstur hefur styrkst frá sama tíma í fyrra og frá liðnum fjórðungum og hefur samsett hlutfall ekki verið lægra síðan á fjórða fjórðungi 2014. Sögulega séð hefur þriðji ársfjórðungur komið best út, þar sem kostnaður er lægri og tjón alla jafna minni en í öðrum fjórðungum. Sé litið til afkomu fyrir fyrstu 9 mánuði ársins verður hún í heildina að teljast góð þar sem tjónahlutfall fer lækkandi. Væntingar eru um að aðgerðir sem gripið hefur verið til færi afkomu ársins nær þeim horfum sem birtar voru í upphafi árs, þ.e. að samsett hlutfall verði á bilinu 98-100% og að afkoma fyrir skatta verði 2 til 2,5 milljarðar“, er haft eftir Hermanni Björnssyni, forstjóra Sjóvá Almenna.