Salan á svörtum föstudegi jókst um 21,4% milli ára

Það var meðal annars nóg að gera í Elko í …
Það var meðal annars nóg að gera í Elko í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Íslendingar virðast hafa tekið ástfóstri við nýjan verslunardag sem er kallaður svarti föstudagurinn (e. black Friday), en fjölmargar verslanir auglýstu í gær stórlækkað verð á fjölda vörutegunda. Samkvæmt kortaveltutölum frá Valitor jókst salan á svarta föstudeginum um 21,4% milli ára og því ljóst að dagurinn er að verða ört vaxandi verslunardagur hér á landi.

Undanfarna daga auglýstu kaupmenn duglega hvert tilboðið á fætur öðru og sáust afsláttarkjör upp í 70% á völdum vörum. Algengt var að verslanir væru með um 20% afslátt af öllum vörum eða hærri afslátt af völdum vörum. Þessi siður að bjóða ríflega afslætti á þessum degi kemur frá Bandaríkjunum þar sem föstudagurinn eftir þakkargjörðahátíðina er orðinn að einum mesta verslunardegi ársins.

Mynd/Valitor

Nokkrar Evrópuþjóðir tóku upp þennan sið fyrir nokkrum árum síðan og í fyrra mátti sjá auglýsingar frá kaupmönnum hér á landi þar sem minnst var á svartan föstudag.

Samkvæmt tölum frá Valitor byrjaði verslun strax um miðnættið, en einhverjar verslanir opnuðu strax þá. Þá var einnig nokkur fjöldi sem opnaði snemma um morguninn og á tölum Valitor má sjá að fljótlega eftir klukkan 9 tekur salan við sér og heldur áfram að aukast alveg fram til fimm um daginn. Þá tekur hún að lækka, en þrátt fyrir það er áfram talsverð sala allt fram á miðnætti, en fjöldi verslana var með opið þangað til.

Svartur föstudagur markar upphaf jólaverslunarinnar í Bandaríkjunum. Miðað við vinsældir …
Svartur föstudagur markar upphaf jólaverslunarinnar í Bandaríkjunum. Miðað við vinsældir þessa dags hér á landi er ekki ólíklegt að hann muni marka þessi tímamót hér á landi í framtíðinni.

Ef horft er á hvert klukkustundabil jókst salan frá í fyrra á öllum bilum nema milli 2 og 3 um nóttina.

Fjöldi kortafærsla hjá Valitor jókst um 21% milli ára og veltan fór upp um 21,4%. Bæði í ár og í fyrra er 18% veltunnar frá netverslun og 82% frá verslunum. Samkvæmt tölum frá Bretlandi er netverslun mun meiri þar en hér á landi, en 57% veltunnar í gær var í gegnum netverslun.

Það skal tekið fram að í báðum gröfunum frá Valitor er ekki að finna nafntölur yfir sölu heldur lýsa þau hlutfallsbreytingu milli ára.

mynd/Valitor
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka