Hæstiréttur í Kína komst að þeirri niðurstöðu að kínverska íþróttavörufyrirtækið Qiaodan megi ekki nota nafnið Qiaodan í kínversku letri en Qiaodan er kínverska þýðingin á nafninu Jordan.
Bandaríski körfuboltakappinn Michael Jordan hefur undanfarin ár staðið í lagadeilum við fyrirtækið en hann telur það vera að notfæra sér nafn hans til þess að selja íþróttavörur. Ekki er nóg með það að fyrirtækið noti nafn Jordan heldur er merki fyrirtækisins mjög svipað Air Jordan-merkinu sem Nike hefur notað í fjölda ára.
Qiaodan Sports á meira en 6.000 búðir í Kína og hefur keðjan unnið Jordan nokkrum sinnum þegar málið hefur verið tekið fyrir í lægri dómstigum.
Jordan sagðist í dag vera mjög ánægður með niðurstöðu kínverska dómstólsins. „Niðurstaða dagsins í dag sér til þess að kínverskir aðdáendur mínir og kínverskir neytendur vita að Qiaodan Sports og vörur þeirra tengjast mér á engan hátt,“ sagði í tilkynningu frá kappanum sem er hæst launaði íþróttamaður allra tíma.
Jordan fékk þó ekki allt sem hann vildi en Qiaodan má enn þá nota nafnið sitt með rómverska stafrófinu sem það gerir með nokkrar vörur.
Qiaodan Sports segist ætla að virða niðurstöðu dómstólsins en bætti við að ákvörðunin hafi ekki áhrif á vörumerki sem eru nú þegar í notkun og gáfu í skyn að merkið sem minnir á Nike-merkið fyrrnefnda verði áfram notað.
Í frétt CNN kemur fram að í gegnum árin hafi fyrirtækið notfært sér ímynd Jordan á ýmsan máta. Að sögn Jordan hefur fyrirtækið byggt starfsemina í kringum óheimila notkun á kínverska nafninu hans og treyjunúmerinu hans 23. Hann segir að fyrirtækið hafi einnig reynt að fá einkaleyfi á nöfnum sona hans, Jeffrey og Marcus, á kínversku.