Erlendir ferðamenn hafa greitt 217 milljarða króna með greiðslukortum sínum það sem af er ári hér á landi. Í fyrra nam greiðslukortavelta þeirra hér á landi 145 milljörðum króna á fyrstu 11 mánuðum ársins. Greiðslukortavelta fyrstu ellefu mánuði ársins er því um helmingi meiri en á sama tímabili í fyrra og 41% meiri en allt árið 2015.
Í nóvember nam erlend greiðslukortavelta 15,3 milljörðum króna en það er 67% aukning frá sama mánuði í fyrra.Nóvember er jafnan rólegur mánuður í ferðaþjónustu og er það til marks um mikinn vöxt greinarinnar að greiðslukortavelta undangengins nóvembermánaðar var svipuð og í júlí 2013. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Rannsóknasetri verslunarinnar.
Veruleg aukning varð í farþegaflutningum með flugi eða um 170% frá fyrra ári en flokkurinn er sá stærsti í þeim tölum sem Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman. Velta flokksins í nóvember nam ríflega 3,6 milljörðum en hluti þeirrar fjárhæðar stafar af erlendri starfsemi flugfélaga. Borið saman við fyrra ár var einnig töluverður vöxtur í öðrum flokkum sem tengjast samgöngum ferðamanna. Þannig jókst kortavelta bílaleiga um 68,3% og velta flokksins „Bensín, viðgerðir og viðhald“ jókst um 84,6%.
„Þrátt fyrir styrkingu krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum er enn gífurleg aukning í sérsniðnar ferðir um landið með leiðsögn samkvæmt því sem kemur fram í flokknum „Ýmis ferðaþjónusta“. Þannig njóta skoðunarferðir um landið ekki síður vinsælda í skammdeginu en á sumrin. Kortavelta í þessum útgjaldaflokki jókst um 78,2% frá nóvember í fyrra og nam tæpum 2,5 milljörðum króna í mánuðinum.
Yfir helmingsaukning var í veltu gististaða í nóvember samanborið við sama mánuð í fyrra. Þannig jókst erlend kortavelta gististaða um 57,3% frá fyrra ári og nam í nóvember tæpum 2,6 milljörðum samanborið við 1,6 milljarð í nóvember 2015. Þá greiddu ferðamenn um 1,6 milljarð með kortum sínum á veitingastöðum í nóvember eða 45,1% meira samanborið við nóvember í fyrra,“ segir í tilkynningu.
Erlend greiðslukortavelta í verslun nam um 1,8 milljarði kr. í nóvember síðastliðnum og jókst um 28% frá nóvember í fyrra. Mestur vöxtur kortaveltu í verslun var í flokki dagvöru, 59% og tollfrjálsri verslun, 58%.
„Athyglisvert er að vöxtur erlendrar kortaveltu í dagvöruverslunum helst nokkurn veginn í hendur við fjölgun ferðamanna sem koma til landsins, á meðan vöxtur greiðslukortaveltu sérvöruverslana er minni. Líklega má heimfæra þessa þróun á sterkt gengi krónunnar um þessar mundir en það veldur því að allt verðlag verður hærra frá sjónarhóli erlendra ferðamanna,“ segir í tilkynningu.
Í nóvember komu 131.723 ferðamenn til landsins um Leifsstöð samkvæmt talningu Ferðamálastofu, 61,4% fleiri en í sama mánuði í fyrra.
Ef miðað er við fjölda erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll greiddi hver þeirra að jafnaði með greiðslukorti sínu fyrir 116 þús. kr. í ágúst, eða 5,5% minna en í október. Það er 3,6% hærri upphæð en í sama mánuði í fyrra.
Líkt og síðustu mánuði keyptu ferðamenn frá Sviss að jafnaði fyrir hæstar fjárhæðir með greiðslukortum sínum eða 225 þús. kr. á hvern ferðamann. Bandaríkjamenn eru í öðru sæti með 160 þús. kr. á hvern ferðamann. Danir koma þar næst með 142 þús. kr. á mann.
Velta eftir þjóðernum ræðst meðal annars af því hversu löng dvölin hér á landi er og hvort greitt hafi verið fyrir ferðina áður en komið er til landsins auk þess sem mismunandi er í hve miklum mæli ferðamenn greiða með greiðslukortum. Þá þarf að hafa í huga að tölur um fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll ná ekki til allra þeirra sem koma til landsins.