Íslandsbanki mun greiða 27 milljarða til íslenska ríkisins í formi arðs fyrir áramót. Á hluthafafundi bankans í dag var tekin ákvörðun um sérstaka greiðslu arðs að fjárhæð 27 milljarða króna til hluthafa fyrir árslok. Íslenska ríkið er eini hluthafi Íslandsbanki og fer Bankasýsla Ríkisins með eignarhlutinn.
Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að almennt viðmið bankans sé að greiða 40-50% af hagnaði í arð, en í apríl voru greiddir 10 milljarðar í arð til hluthafa sem samsvarar 50% af hagnaði ársins 2015. Með arðgreiðslunni nú, hafa samtals verið greiddir 37 milljarðar í arð á árinu 2016 til íslenska ríkisins.
„Mikil vinna hefur farið fram síðustu ár við endurskipulagningu á eignahlið efnahagsreiknings bankans. Endurskipulagningu á lánasafni er nú lokið, vanskilahlutfall fer lækkandi og hverfandi hluti endurskipulagðra lána fer aftur í vanskil. Þessi árangur setur bankann í flokk þeirra 25% evrópskra banka sem hafa hvað lægst vanskilahlutföll,” segir í tilkynningunni.
„Með arðgreiðslunni í dag er stigið stórt skref í átt að eðlilegri fjármagnsskipan á skuldahlið efnahagsreiknings bankans. Íslandsbanki hefur viðhaldið öflugum eiginfjár- og lausafjárhlutföllum til að takast á við möguleg áhrif vegna afléttingar hafta og áföllum í rekstarumhverfi. Skuldastaða íslenska ríkisins, fyrirtækja og heimila í landinu hefur stórbatnað á undanförnum árum og lög um skref til afléttingu fjármagnshafta hafa verið samþykkt.“
Eiginfjárhlutfall bankans eftir arðgreiðsluna verður 24%, en markmið bankans er að hlutfallið sé yfir 23% sem er vel yfir 19,1% eiginfjárkröfu Fjármálaeftirlitsins. Vogunarhlutfall verður 15,7%, sem sýnir hóflega skuldsetningu og telst afar gott í samanburði við evrópska banka. Lausafjárstaða verður áfram traust og vel umfram innri viðmið og kröfur eftirlitsaðila.
„Íslandsbanki hefur viðhaldið öflugum eiginfjár- og lausafjárhlutföllum til að mæta losun fjármagnshafta og mögulegum áföllum í rekstarumhverfi sínu. Jákvæð þróun í íslensku efnahagslífi og skynsöm skref til afléttingu hafta, skapa nú tækifæri fyrir Íslandsbanka að ná fram hagstæðari samsetningu á eiginfjárgrunni sínum,“ er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka í tilkynningu.
„Þrátt fyrir afar hátt eigið fé, hefur Íslandsbanki haldið áfram að skila viðunandi arðsemi af undirliggjandi rekstri. Aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum er gott og bankinn nú að fullu fjármagnaður á markaði. Endurskipulagningu á lánasafni er lokið. Ábyrg stefna í útlánum hefur aukið gæði lánasafns og vanskil fara lækkandi. Rekstrarumhverfi á Íslandi er hagfellt og lausafjárstaða bankans afar góð. Íslandsbanki er því vel í stakk búinn til að greiða sérstakan arð til eigenda sinna."