Hlutabréf í Takata, sem framleiðir líknarbelgi í bifreiðar, lækkuðu um 17% á hlutabréfamarkaði í Japan í dag. Ástæðan er fréttir af því að farið verði fram á að fyrirtækið verði sett í gjaldþrotameðferð og að keppinautar fyrirtækisins taki yfir starfsemi þess.
Gallaðir líknarbelgir frá fyrirtækinu skýra að mestu innkallanirnar á bifreiðum undanfarin misseri.
Ótímabærar sprengingar belgjanna tengjast að minnsta kosti 15 dauðsföllum í heiminum og alvarlegra meiðsla á fleiri hundruð einstaklingum. Rúmlega 100 milljónir líknarbelgja hafa verið innkallaðar vegna gallans.
Meðal helstu viðskiptavina Takata eru Toyota, Honda, General Motors og BMW.