Sala á 1984 rýkur upp

Ummæli Kellyanne Conway, ráðgjafa Donald Trump, hafa verið borin saman …
Ummæli Kellyanne Conway, ráðgjafa Donald Trump, hafa verið borin saman við skáldsöguna 1984. AFP

Skáldsaga George Orwell, 1984, er komin í fyrsta sæti topplista bóksölu Amazon, 68 árum eftir að hún kom út. Spurn eftir bókinni hefur aukist gríðarlega síðustu daga og er hún tengd við vangaveltur sérfræðinga um að ummæli Kellyanne Conway, helsta ráðgjafa Donald Trump, minntu á verk Orwell.

Samkvæmt frétt CNN er þó erfitt að meta tengslin milli innsetningarathafnar Trump á föstudaginn og umræðu um „aðrar mögulegar staðreyndir“ sem fór á flug eftir viðtal við Conway á sunnudaginn.

Þar varði hún Sean Spicer, fjöl­miðlafull­trúa for­set­ans, sem á fyrsta blaðamannafundi sínum í nýju embætti sagði fjölmiðla þá hafa birt rang­ar upp­lýs­ing­ar um mann­fjöld­ann af ásettu ráði. „Þetta var stærsti áhorf­enda­skari við embættis­töku frá upp­hafi, punkt­ur!“ sagði hann.

Banda­rísk­ir fjöl­miðlar segja þess­ar full­yrðing­ar rang­ar og spurði sjónvarpsmaðurinn Chuck Todd Conway hvort það hefðu ekki verið mistök að leyfa Spicer að segja ósatt á fyrsta blaðamannafundinum. Conway sagði að fullyrðingar Spicer hefðu ekki verið rangar en vék sér und­an því að segja að þær væru rétt­ar. Hún kallaði þær „aðrar mögu­leg­ar staðreynd­ir“ (e. alternati­ve facts).

1984 kom fyrst út árið 1949.
1984 kom fyrst út árið 1949.

Skáldsagan 1984 segir frá heimi þar sem eftirlit stjórnvalda er gríðarlegt ásamt áróðri og hinu pólitíska tungumáli „newspeak“. Í bókinni er einnig sagt frá „Sannleiksráðuneytinu“ (e. Ministry of Truth) sem dreifir lygum.

75.000 eintök af 1984 voru sett í prentun í þessari viku. „Það er umtalsverð prentun og stærri en týpísk endurprentun á 1984,“ hefur CNN eftir talsmanni Penguin. Benti hann þó á að sala á 1984 aukist alltaf um leið og vorannir í skólum hefjast þar sem bókin er kennd á mörgum stöðum. En umfang endurprentunarinnar er meira en vanalega.

Samkvæmt Nielsen BookScan sem heldur utan um stærstan hlut bóksölu í Bandaríkjunum hefur 1984 selst í 47.000 eintökum síðan gengið var til forsetakosninga í Bandaríkjunum í nóvember. Það var aukning milli ára en á sama tímabili fyrir ári höfðu 36.000 eintök selst.

Sala á 1984 jókst einnig árið 2013 þegar gagnaleki Edward Snowden komst í heimsfréttirnar.

Neðar á lista Amazon eru bækur með svipuðu þema og 1984, þ.e. bækurnar „It Can‘t Happen Here“ eftir Sinclair Lewis og „Brave New World“ eftir Aldous Huxley.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK