IKEA lækkar verð

Verð á húsbúnaði í IKEA hefur ekki hækkað frá árinu …
Verð á húsbúnaði í IKEA hefur ekki hækkað frá árinu 2012. mbl.is/Árni Sæberg

Frá og með morgundeginum lækkar allt verð á húsbúnaði í IKEA um 10% að meðaltali, sumar vörur lækka minna, aðrar meira. Þetta er í annað sinn frá upphafi rekstrarársins, 1. september 2016, sem verð er lækkað í versluninni og því er t.d. allt verð mun lægra í dag en kemur fram í vörulista IKEA sem gefinn var út í ágúst.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá IKEA.

„Aðstæður hafa skapast undanfarin misseri til að lækka vöruverð; stöðugleiki í efnahagsmálum, styrking krónunnar og aukin umsvif, ekki síst vegna gríðarlegrar fjölgunar á ferðamönnum til landsins,“ segir í tilkynningunni.  Þar er jafnframt bent á að verð á húsbúnaði í IKEA hefur ekki hækkað frá árinu 2012.

„Styrking krónunnar heldur áfram og því hefur verið ákveðið að líta bjartsýnum augum til framtíðar og skila þessari styrkingu án tafar til viðskiptavina. Það er von forvarsmanna IKEA að verðlækkanir fyrirtækisins hafi jákvæð áhrif á áframhaldandi stöðugleika og kaupmátt landsmanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK