Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 11,5% á 12 mánaða tímabili frá janúar 2016. Á sama tíma hefur söluverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 16,3%. Kaupverð fjölbýlis hefur hækkað um 10% meira en leiguverð frá upphafi ársins 2011.
Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans í dag.
Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2017 sem þar koma fram eru unnar upp úr rúmlega 430 leigusamningum sem þinglýst var í mánuðinum. Til samanburðar voru samningarnir 470 í janúar 2016. Fjöldi samninga er nokkuð breytilegur eftir mánuðum og því byggja mælingarnar á mistraustum grunni.
Í Hagsjá er bent á að leiguverð fyrir tveggja herbergja íbúðir er nær alls staðar töluvert hærra en á þriggja herbergja íbúðum sem er svo líka alls staðar hærra en á stærstu íbúðunum. Eina undantekningin á þessu er Akureyri. Sums staðar er þessi munur verulegur, eins og í Kópavogi og austurhluta Reykjavíkur.
„Munur á leiguverði tveggja og þriggja herbergja íbúða er mestur í Kópavogi, 28%, en er að meðaltali um 13% á öllum svæðum. Munurinn á þriggja herbergja íbúðum og þeim stærri er mestur á Suðurnesjum, 28%, en er að meðaltali 16%. Leiguverðið er hæst fyrir allar stærðir íbúða í vesturhluta Reykjavíkur og lægst utan höfuðborgarsvæðisins, en annars er dreifingin þar á milli nokkuð jöfn,“ segir í Hagsjá.
Mesta breyting á leiguverði milli janúar 2016 og 2017 er 25% hækkun tveggja herbergja íbúða á Suðurnesjum og þar á eftir koma tveggja herbergja íbúðir í Kópavogi. Minnstu breytingarnar eru 14% lækkun á minnstu íbúðunum á Akureyri og um 2% hækkun á þriggja herbergja íbúðum í austurhluta Reykjavíkur. Vísitala leiguverðs hækkaði um 11,5% á milli þessara tímabila.