Sýnt verður beint frá Iðnþingi Samtaka iðnaðarins á mbl.is og fylgjast má með útsendingunni hér að neðan. Iðnþingið hefst klukkan 14 og stendur til 16:30.
Guðrún Hafsteinsdóttir, sem var endurkjörin formaður samtakanna í morgun, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flytja ávörp sín í upphafi fundsins. Þá verða umræður um helstu áskoranir í uppbyggingu innviða.
Dagskrá
Ávarp formanns SI
Ávarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Glímt við þjóðveginn – Samgöngur og uppbygging
- Ásthildur Sturludóttir, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur
- Baldvin Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Eflu
- Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERK
- Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Ég á mér draum um straum – Raforka og orkuskipti
- Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
- Guðrún Halla Finnsdóttir, verkefnastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli
- Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
- Sveinn I. Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís
Er ekki tími til kominn að tengja? – Samskipti og gögn
- Jóhann Þór Jónsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og rekstrar hjá Advania
- Orri Hauksson, forstjóri Símans
- Ragnheiður H. Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Marel
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Farðu alla leið - Markmið og metnaður
- Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI