Þorsteinn Jóhannesson er nýr framkvæmdastjóri Farfugla. Hann hefur fjórtán ára reynslu af rekstri fyrirtækja, meðal annars sem rekstrar- og framkvæmdastjóri hjá Norðursiglingu en einnig rak hann sitt eigið framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Síðustu ár vann hann við rekstrar- og fjármálaráðgjöf hjá Beringer Finance í Stokkhólmi og Reykjavík
Þorsteinn tekur við af Markúsi Einarssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins í tuttugu ár.