Sigurður og Capacent stofna Arcur Finance

Sigurður Kristinn Egilsson, framkvæmdastjóri Arcur Finance.
Sigurður Kristinn Egilsson, framkvæmdastjóri Arcur Finance.

Arcur Finance er nýtt félag sem sérhæfir sig í fjármögnun fyrirtækja. Stofnendur Arcur Finance eru Sigurður Kristinn Egilsson, sem verður framkvæmdastjóri félagsins, og Capacent.

Arcur Finance mun starfa á sviði fjármögnunar fyrirtækja og vinna að því að tryggja viðskiptavinum bestu kjör þegar kemur að fjármögnun verkefna. Lánveitendur geta verið lífeyrissjóðir, tryggingafélög eða fjármálastofnanir sem Arcur Finance er í nánu samstarfi við.

„Arcur Finance hefur að markmiði að auka fjölbreytni í fjármögnun íslenskra fyrirtækja og er nýr valmöguleiki fyrir fyrirtæki sem geta nýtt sér reynslu og þekkingu starfsmanna við að tryggja viðskiptavinum hagstæðustu kjör á hverjum tíma. Samstarfið við Capacent eykur flæði verkefna og Arcur Finance nýtur góðs af áratuga þekkingu og reynslu starfsmanna Capacent og sterkum tengslum við atvinnulífið í landinu,“ er haft eftir Sigurði Kristni Egilssyni, framkvæmdastjóri Arcur Finance, í tilkynningu.

Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri Capacent.
Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri Capacent.

Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri Capacent, segur ap sanstarfið við Sigurð á vettvangi Arcur Finance sé góð viðbót við þjónustu Capacent og geri fyrirtækinu kleift að þjónusta viðskiptavini á breiðari grunni og fylgja þeim í gegnum breytingarverkefni. 

Sigurður Kristinn hefur starfað samfellt á fjármálamarkaði frá árinu 1998 og aflað sér viðamikillar þekkingar og reynslu á þeim markaði. Hann var yfirmaður eignastýringar fagfjárfesta hjá Kaupþingi á árunum 2003-2007 og starfaði síðan á eignastýringasviði bankans erlendis. Á árunum 2010-2016 leiddi hann uppbyggingu eignastýringar hjá ALM Verðbréfum og var m.a. framkvæmdastjóri Fjárfestingafélags atvinnulífsins sem sérhæfði sig í fjármögnun fyrirtækja. Sigurður er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og með löggildingu í verðbréfaviðskiptum.“

Capacent á Íslandi er hluti af Capacent Holding AB í Svíþjóð sem var upphaflega stofnað árið 1983 og er skráð á Nasdaq First North markaðnum í kauphöllinni í Stokkhólmi frá árinu 2015. Félagið er með skrifstofur á Íslandi, í Svíþjóð og á Finnlandi og hjá því starfa um 150 sérfræðingar. Capacent hefur sterka stöðu sem norrænt ráðgjafafyrirtæki og er leiðandi sem slíkt á mörgum sviðum. Ráðgjafar Capacent vinna að greiningu, mótun og innleiðingu margvíslegra lausna á sviði stefnumótunar, stjórnunar, ráðninga, rekstrar, fjármála og upplýsingatækni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK