Betri afkoma hjá Advania Norden

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania Norden.
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania Norden. mbl.is/Styrmir Kári

Heildartekjur Advania Norden á árinu 2016 námu 23,1 milljarði króna og jukust um 3% milli ára. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam tæpum 2,4 milljörðum og jókst um 15% frá fyrra ári. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 523 milljónum króna.

Tekjur Advania á Íslandi námu 11,4 milljörðum króna og jukust um 7% milli ára. Tekjur Advania í Svíþjóð námu samtals 10,4 milljörðum króna og jukust um 9% frá fyrra ári. EBITDA Advania í Svíþjóð var 1,2 milljarðar króna árið 2016 sem er 13% aukning frá árinu áður. Heildartekjur Advania í Noregi árið 2016 námu 1,9 milljörðum króna. Mikill viðsnúningur var í starfseminni og var EBITDA ársins 36 milljónir króna en hafði verið neikvæð á árinu áður um 110 milljónir króna. Árið 2016 var fyrsta rekstrarár gagnavera Advania í sérstöku félagi og námu tekjur þess 1,3 milljörðum króna og EBITDA 172 milljónum króna

„Við erum mjög sátt við uppgjörið sem sýnir að starfsemi okkar er á réttri leið,“ er haft eftir Thomas Ivarson, stjórnarformanni Advania Norden, í tilkynningu. „Rekstrarafkoma batnar í öllum löndum og framlegð heldur áfram að vaxa. Helsta áskorun í rekstri félagsins er vaxtakostnaður sem er of hár og hefur því verið forgangsverkefni að lækka vaxtaberandi skuldir félagsins.“ Fram hefur komið að eigendur félagsins stefna á skráningu þess í Kauphöllinni í Stokkhólmi á árinu 2018 í samvinnu við Nasdaq á Íslandi.

Betri afkoma hjá öllum einingum

„Rekstur samstæðunnar gekk mjög vel á síðasta ári og allar rekstrareiningar skiluðu betri afkomu en fyrri ár og jákvæðum rekstarárangri. 2016 er fyrsta rekstarár gagnvera Advania í aðgreindu félagi og þar er tekjurnar komin vel yfir einn milljarð og afkoman góð,“ er haft eftir Ægi Má Þórissyni, forstjóra Advania á Íslandi. „Hvað varðar starfsemi utan Íslands þá hefur verkefnastaðan þar verið mjög góð og um 52% af EBITDA samstæðunnar kemur frá rekstri félaga utan Íslands. Sama þróun er að eiga sér stað allstaðar, eftirspurn eftir útvistun og alrekstarþjónustu í upplýsingatækni er stöðugt að aukast,“ er haft eftir Ægi.

Hjá Advania Norden starfa samtals um 1.000 starfsmenn á 20 starfsstöðvum á Íslandi, í Svíþjóð, í Danmörku og í Noregi. Advania Norden er eitt af stærstu fyrirtækjum Norðurlanda á sviði upplýsingatækni.

Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi en félagið er með umfangsmikla starfsemi á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Forstjóri Advania Norden er Gestur G. Gestsson og félagið er að stærstum hluta í eigu AdvInvest AB.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK