21,4 milljarða króna halli á vöruskiptum

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Fyrstu tvo mánuði ársins hefur halli á vöruskiptum numið 21,4 milljörðum króna. Á þessu tímabili hafa verið fluttar inn vörur fyrir 90,5 milljarða en úr landi fyrir 69,1 milljarð króna. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 3,5 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 17,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Í febrúar voru fluttar út vörur fyrir 31,6 milljarða króna og inn fyrir 44,3 milljarða króna fob (47,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,7 milljarða króna. Í febrúar 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 2,9 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verkfall sjómanna hefur enn áhrif

Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 19,3 milljörðum króna lægra, eða 21,8%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 61,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,8% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 31,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 43,3% lægra en á sama tíma árið áður, vegna verðlækkunar, auk þess sem reikna má með að áhrifa af verkfalli sjómanna gæti enn í tölunum.


Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 1,4 milljörðum króna lægra, eða 1,6%, á gengi hvors árs en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á fjárfestingavörum og neysluvörum saman en á móti jókst innflutningur á flutningatækjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK