Styrmir Gunnarsson hefur bæst í eigendahóp lögmannsstofunnar Landslaga. Þetta var samþykkt á síðast aðalfundi lögmannsstofunnar og greint frá í fréttatilkynningu í dag.
Styrmir lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 2009 en hóf störf með námi hjá Landslögum árið 2006. Hann hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2011. Eiginkona Styrmis er Móeiður Júníusdóttir grunnskólakennari í Hraunavallaskóla og saman eiga þau þrjú börn.
Styrmir hefur reynslu af málum á helstu réttarsviðum lögfræðinnar en hefur sérhæft sig á sviði skaðabótaréttar. Styrmir hefur rekið fjölda skaðabótamála fyrir dómstólum með góðum árangri og lokið farsællega hundruðum skaðabótamála fyrir umbjóðendur sína.