Herdís D. Fjeldsted, sem sagði sig úr stjórn VÍS fyrir skemmstu, segir í ítarlegu viðtali í ViðskiptaMogga í dag að ástæðu afsagnarinnar megi rekja til ólíkrar sýnar hennar og núverandi stjórnarformanns félagsins á stjórnarhætti skráðra og eftirlitsskyldra fyrirtækja.
Sú ólíka sýn hafi leitt til skorts á trausti milli aðila. „Það kom í ljós að við höfum mjög ólíka sýn á vinnubrögð og stjórnarhætti.
Þar vísa ég sérstaklega til þeirra valdmarka sem ég tel að séu til staðar á vettvangi stjórna skráðra og eftirlitsskyldra fyrirtækja,“ segir Herdís meðal annars í samtalinu.