Flugfélagið Germania hefur beint flug frá Keflavík til Bremem 18. júní næstkomandi. Verður flogið tvisvar í viku til 14. október. Boðið var upp á beint flug frá Keflavík til Bremen síðasta sumar og var aðsóknin frábær samkvæmt fréttatilkynningu.
Í tilkynningu kemur fram að Bremen bjóði upp á frábæra möguleika fyrir stuttar borgarferðir, byggingar á heimsminjaskrá UNESCO, spennandi og heillandi borgarhverfi og hagstætt verðlag fyrir innkaupaferðir.
Eins og fyrr segir verður flogið tvisvar í viku og tekur flugið 3,5 klukkustund.