Flugfélagið WOW air stefnir á að eiga 10% hlutdeild í flugmarkaði á milli Evrópu og Norður-Ameríku en árlega fljúga 60 milljónir farþega þar á milli.
Túristi greinir frá þessu en þar er vitnað í Daníel Snæbjörnsson, forstöðumann leiðakerfis WOW air. Gangi fyrirhugaðar áætlanir flugfélagsins eftir er ljóst að það verður umsvifameira í flugi yfir Atlantshafið en Icelandair.
Hlutdeild Icelandair í flugi milli Evrópu og Norður-Ameríku var um 1% fyrir tveimur árum en talið er að hún hafi í það minnsta tvöfaldast síðan þá.
Munurinn á umsvifum íslensku flugfélaganna tveggja verður sífellt minni. Í mars árið 2014 var Icelandair til að mynda með 71,8% allra ferða frá Keflavíkurflugvelli en hlutfallið var 45,3% í síðasta mánuði. WOW air stendur fyrir 28,9% ferða frá Keflavík.
Skúli Mogensen, forstjóri og aðaleigandi WOW, sagði fyrr á árinu að hann gerði ráð fyrir því að WOW yrði með fleiri farþega en Icelandair á næsta ári.
„Það er hins vegar ekkert markmið í sjálfu sér að verða stærri en Icelandair. Ég hef látið það líka flakka að það er ágætt að stefna að því að verða Íslandsmeistari en ég hef miklu meiri áhuga á að verða heimsmeistari,“ sagði Skúli í sjónvarpsþættinum Eyjunni.