Ólafur og Hörður til Landsbankans

Hörður Steinar Sigurjónsson.
Hörður Steinar Sigurjónsson.

Hörður Steinar Sigurjónsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Landsbankanum og Ólafur Frímann Gunnarsson er nýr forstöðumaður.

Hörður Steinar Sigurjónsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Markaðsviðskiptum Landsbankans við miðlun verðbréfa. Hörður hefur starfað við verðbréfamiðlun frá árinu 2005, síðast hjá Íslandsbanka. Hörður er löggiltur verðbréfamiðlari með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Ólafur Frímann Gunnarsson.
Ólafur Frímann Gunnarsson.

Ólafur Frímann Gunnarsson hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns hjá Eignastýringu Landsbankans. Vegna stóraukinna umsvifa í Eignastýringu hafa verið gerðar skipulagsbreytingar til að styðja betur við áherslur á ólíka þjónustuþætti. Eignastýringu bankans hefur verið skipt í tvær aðgreindar einingar, Fjárfestingar annars vegar og Þjónustu hins vegar en undir hana falla Einkabankaþjónusta, Verðbréfa- og lífeyrisþjónusta, Fagfjárfestaþjónusta og Fyrirtækjaþjónusta. Ólafur er forstöðumaður Fjárfestinga og Kristín Erla Jóhannsdóttir veitir Þjónustunni forstöðu.

Ólafur hefur starfað í Landsbankanum undanfarið ár en hefur á að skipa tuttugu ára reynslu úr bankakerfinu. Ólafur er með Cand. oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Eignastýring og Markaðsviðskipti heyra undir Markaði Landsbankans og er Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK