Þórunn Guðmundsdóttir er nýr formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Hún var kjörin formaður á fyrsta fundi nýkjörins bankaráðs á föstudaginn.
Þórunn var fyrst kjörin í bankaráðið í mars 2015 í stað Ólafar Nordal og tók Þórunn við hlutverki formanns í apríl það ár. Á fundinum á föstudag var Sveinn Agnarsson kjörinn varaformaður.
Aðrir í bankaráði eru Björn Valur Gíslason, Sigurður Kári Kristjánsson, Þór Saari, Frosti Sigurjónsson og Auður Hermannsdóttir.