Fasteignaverð hækkaði um 2,2% í apríl

Raunverð fasteigna hefur nú farið upp fyrir það stig þar …
Raunverð fasteigna hefur nú farið upp fyrir það stig þar sem það var hæst í október 2007. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Í apríl tók fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu stórt stökk einu sinni enn og hækkaði um 2,2% frá því í mars. Þar af hækkaði fjölbýli um 2,6% og sérbýli um 1,1%. Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur fjölbýli hækkað um 23,2% á síðustu 12 mánuðum, sérbýli um 21,6% og er heildarhækkunin 22,7%.

„Hækkanir síðustu 12 mánaða eru mjög miklar og þarf að fara allt aftur til upphafs ársins 2006 til að sjá álíka tölur,“ segir í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.

Þar er bent á að verðbólga hafi verið lág og haldist stöðug undanfarin þrjú ár og því hefur raunverð fasteigna hækkað mun meira en ella. Vísitala neysluverðs án húsnæðis í apríl var um 1,9% lægri en í apríl 2016, þannig að allar nafnverðshækkanir á húsnæði síðasta árið koma nú fram sem u.þ.b. 2% meiri raunverðshækkanir. Raunverð fasteigna hefur þannig hækkað um 25% á einu ári frá apríl 2016 til apríl 2017.

„Á árunum 2011-2013 var nokkuð sterk fylgni á milli þróunar fasteignaverðs og kaupmáttar launa. Frá miðju ári 2013 til sama tíma 2015 tók fasteignaverðið fram úr, en sú þróun gekk aðeins til baka frá vorinu 2015 fram til sama tíma 2016. Síðan þá hefur fasteignaverð hækkað mun hraðar en kaupmáttur launa, sérstaklega allra síðustu mánuði. Þarna er bæði um það að ræða að kaupmáttaraukningin er ekki eins hröð og áður og þá hefur fasteignaverðið hækkað miklu meira en áður,“ segir í Hagsjá.

Þá hefur bilið á milli húsnæðisverðs og byggingarkostnaðar aukist mikið á síðustu mánuðum. Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,5% milli apríl 2016 og á sama tíma 2017 og hækkun raunverðs á fjölbýli var tæplega 25%.

„Það liggur því í augum uppi að það er mun hagstæðara að byggja íbúðarhúsnæði til að selja nú en var fyrir ári síðan,“ segir í Hagsjá.

Raunverð fasteigna hefur nú farið upp fyrir það stig þar sem það var hæst í október 2007. Raunverðið í apríl var tæplega 1% hærra en það varð hæst. Kaupmáttur launa komst upp fyrir hæsta stig í nóvember 2014 og nú hefur raunverð fasteigna náð sama marki.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK