Linda Björk Waage hefur verið ráðin framkvæmdastjóri yfir Umsjá, nýju sviði innan Nýherja þar sem rekstrarþjónusta og innviðir eru sett undir sama hatt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en Linda hefur starfað hjá því frá árinu 2011 og sinnt þar ýmsum lykilstörfum innan Nýherja, nú síðast sem forstöðumaður þjónustuborðs og UT-rekstrar.
Linda lauk MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009 og BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1997. Linda tekur formlega sæti í framkvæmdastjórn Nýherja 1. júlí.
Auk Lindu sitja í framkvæmdastjórninni; Finnur Oddsson forstjóri, Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Gunnar Zoëga, framkvæmdastjóri viðskiptaframtíðar, Dröfn Guðmundsdóttir mannauðsstjóri og Emil Gunnar Einarsson, framkvæmdastjóri notendalausna.