Bláa Lónið greiðir tæpan 1,5 milljarð í arð

„Vöxtur í starfsemi Bláa Lónsins hélt áfram á síðasta ári. …
„Vöxtur í starfsemi Bláa Lónsins hélt áfram á síðasta ári. Áhersla á fjárfestingar í gæðum og upplifun gesta hefur borið góðan árangur eins og greina má af rekstri félagsins árið 2016. Öflug og virk aðgangsstýring hefur m.a. leikið lykilhlutverk í því efni,“ er haft eftir Grími Sæmundsen, forstjóra Bláa Lónsins í fréttatilkynningu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hagnaður Bláa Lónsins eftir skatta nam 23,5 milljónum evra eða því sem nemur 2,6 milljörðum íslenskra króna. EBITDA nam 28,2 milljónum evra en eiginfjárhlutfall Bláalónsins var 49%.

Handbært fé frá rekstri var 28,1 milljón evra en eignir námu 109,3 milljónum evra eða því sem nemur 12,2 milljðrum króna.

Á aðalfundi Bláa Lónsins sem haldinn var í dag var samþykkt að greiða hluthöfum arðgreiðslu sem nemur 13 milljónum evra eða því sem nemur 1,45 milljörðum króna.

Þá var skattspor félagsins árið 2016 var 18,1 milljónir evra og þar af reiknaður tekjuskattur 6,2 milljónir evra.

„Vöxtur í starfsemi Bláa Lónsins hélt áfram á síðasta ári. Áhersla á fjárfestingar í gæðum og upplifun gesta hefur borið góðan árangur eins og greina má af rekstri félagsins árið 2016. Öflug og virk aðgangsstýring hefur m.a. leikið lykilhlutverk í því efni,“ er haft eftir Grími Sæmundsen, forstjóra Bláa Lónsins í fréttatilkynningu.   

„Unnið er að áframhaldandi uppbyggingu sem felst í stækkun á upplifunarsvæði Bláa Lónsins og nýju hágæðahóteli, þar sem áherslan verður áfram lögð á einstaka upplifun gesta og mikil þjónstugæði. Nýja upplifunarsvæðið og hótelið munu opna á síðari hluta ársins og verður það mikilvægur áfangi í starfsemi Bláa Lónsins.

Nú starfa í kringum 600 manns hjá Bláa Lóninu og ljóst er að þeim mun fjölga umtalsvert við þessi auknu umsvif.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK