Minni kortavelta vegna sterkari krónu

Erlend kortavelta nam 21,3 milljörðum króna í maí en 19,9 milljörðum á sama tíma í fyrra. Hlutfallsvöxtur frá fyrra ári er því um 7,1% og hefur ekki verið minni frá því að Rannsóknasetur verslunarinnar hóf söfnun hagtalna um kortaveltu erlendra ferðamanna fyrir fimm árum. Kortaveltan jókst í krónum talið um 1,4 milljarða frá maí í fyrra. Meginástæðan fyrir minni vexti kortaveltu nú er vafalítið sterkt gengi krónunnar.

Fram kamur í fréttatilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar að samdráttur hafi orðið í nokkrum flokkum erlendrar kortaveltu. „Ber þar helst að nefna verslun en í heild dróst greiðslukortavelta verslunar saman um 4,7% frá fyrra ári, úr 2,3 milljörðum króna í maí 2016 í 2,2 milljarða króna í maí síðastliðnum. Kortavelta í gjafa- og minjagripaverslun dróst saman um 18,9%, fataverslun dróst saman um 5,9%, tollfrjáls verslun um 7,4% og önnur verslun um 10,9%.“ Kortavelta hafi einungis aukist í dagvöruverslun eða um 12,8%.

„Mest jókst kortavelta í maí í flokki farþegaflutninga, um 22,7% eða um 852 milljónir frá sama mánuði í fyrra. Sem fyrr er vakin athygli á því að hluti erlendrar starfsemi innlendra flugfélaga er meðtalin, en farþegaflug er langstærsti einstaki hluti farþegaflutninga í erlendri greiðslukortaveltu. Næstmestur var vöxtur kortaveltunnar í flokki ýmissar ferðaþjónustu en undir flokkinn fellur þjónusta ferðaskrifstofa og ýmsar skipulagðar ferðir. Velta þess flokks jókst um 13,2% frá maí 2016 og nam 3,5 milljörðum króna í maí síðastliðnum.“

Þá hafi erlend greiðslukortavelta í gistiþjónustu einnig aukist eða um 8,7% í maí og nam 3,9 milljörðum króna samanborið við 3,6 milljarða í sama mánuði fyrir ári. Vöxtur kortaveltu veitingastaða var hins vegar heldur minni eða 0,9% frá fyrra ári og nam í maí 2.044 milljónum króna sem er 18 milljónum króna meira en í sama mánuði í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK