Mest fjölgun í bygg­ingar- og ferðaiðnaði

Í maí voru 2.521 launagreiðandi og um 12.400 launþegar í …
Í maí voru 2.521 launagreiðandi og um 12.400 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 eða 15% samanborið við maí 2016. mbl.is/Golli

Launþegum hefur fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi.

Í maí voru 2.521 launagreiðandi og um 12.400 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 eða 15% samanborið við maí 2016. Sömuleiðis voru í maí 1.718 launagreiðendur og um 28.100 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 3.500 eða 14% á einu ári. Launþegum í heild hefur á sama tíma fjölgað um 9.800 eða 5%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Að jafnaði 17.113 launagreiðendur voru á Íslandi á tímabilinu júní 2016 til maí 2017. Hafði þeim fjölgað um 742, eða 4,5%, frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 183.600 einstaklingum laun sem er aukning um 8.600, eða 4,9%, samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

„Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Heildarfjöldi launagreiðenda í apríl 2017 telst nú vera 16.951 og heildarfjöldi launþega 181.500. Fjöldi launþega jókst um 9.000 (5,2 %) frá apríl 2016 til apríl 2017. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK