Þeir fjárfestar sem nýttu sér fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands fyrri hluta 2012 geta nú selt fjárfestingarnar, skipt krónunum í evrur og farið af landi brott.
Meðal þeirra sem þetta geta gert er félag í eigu Ólafs Ólafssonar, kaupsýslumanns og aðaleiganda Samskipa, og Hjörleifs Jakobssonar, fjárfestis. Fjallað er um málið í Markaðinum, viðskiptablaði Fréttablaðsins í dag, sem segir félagið geta innleyst um 809 milljónir króna í gengishagnað miðað við núverandi gengi.
Fjármunirnir eru sagðir verða lausir til ráðstöfunar í lok árs, en félag þeirra Ólafs og Hjörleifs, Arius ehf, er dótturfélag SMT Partners B.V. og á Ólafur 80% þess. Félagið kom með tæpa tvo milljarða króna til landsins í gegnum fjárfestingarleiðina í lok árs 2012.
Alls eru þeir fjárfestar sem komu með evrur til landsins sagðir geta innleyst rúma 20 milljarða króna í gengishagnað, en árleg ávöxtun er um 14%. Krónuafslátturinn sem fjárfestarnir nutu og styrking krónunnar undanfarin ár skýra þennan mikla hagnað.
Alls komu 1.100 milljónir evra til landsins á grundvelli fjárfestingarleiðarinnar. Þar af var Íslensk erfðagreining stórtækasti þátttakandinn með rúmar 118 milljónir evra, samkvæmt umfjöllun Markaðarins.