Kaupás hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað pastasósu frá Gestus vegna aðskotahlutar í krukku.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Krónunni.
Varan heitir Pastasauce Classico og einskorðast innköllunin við þá vöru sem rennur út 23. mars 2020.
Vörunni var dreift í allar verslanir Krónunnar og Kjarvals um allt land og einnig í Nóatúni Austurveri.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna í framangreindum verslunum er bent á að skila þeim í viðkomandi verslun og fá endurgreitt.