Fjögurra hæða hús rísi á Sprengisandi

Skjáskot/Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg hefur auglýst tillögu að nýju skipulagi á Sprengisandi á Bústaðavegi. Í tillögunni felst uppbygging atvinnuhúsnæðis á þremur lóðum þar sem nú er Bústaðavegur 151. 

„Þetta er fyrst og fremst hugsað fyrir atvinnu- og þjónustufyrirtæki. Þetta gæti verið í þremur stökum húsum til að byrja með. Þetta verða þriggja til fjögurra hæða byggingar sem raða sér meðfram Reykjanesbrautinni,“ segir Björn Axelsson skipulagsfulltrúi. 

Á lóðinni stendur hesthús Fáks og segir í tillögunni að gert sé ráð fyrir að þar geti risið svipað atvinnuhúsnæði og á nýbyggingarlóðunum þremur í framtíðinni með deiliskipulagsbreytingu.

Hringtorg verður gert á Bústaðavegi við aðkomugötu inn á svæðið sem leiðir að innkeyrslum á lóðir. Gert er ráð fyrir hjólastíg meðfram göngustíg austan lóða við Byggðarenda og undirgöngum undir Bústaðaveg fyrir þessa stíga. Sunnan Bústaðavegar tengjast stígarnir inn á stígakerfi meðfram Bústaðavegi og í undirgöng undir Reykjanesbraut.

Hægt er að skoða tillöguna nánar hér en frestur til að skila skriflegum ábendingum rennur út 25. ágúst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK