Farþegum WOW air fjölgaði um 49%

WOW air flutti 318 þúsund farþega til og frá landinu í júlí eða um 49% fleiri farþega en í júlí árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 90% í júlí í ár en aukning á framboðnum sætakílómetrum var 51%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Það sem af er ári hefur WOW air flutt yfir 1,5 milljónir farþega en það er 103% aukning á sama tímabili frá árinu áður.

„WOW air flýgur nú til 32 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku og hefur yfir að ráða einn yngsta flugflotann í Evrópu en meðalaldur hans er 2,05 ár. Nýlega hófst áætlunarflug til Chicago í Bandaríkjunum og í næsta mánuði verður flogið til Tel Aviv en það er í fyrsta sinn í flugsögu Íslands sem beint áætlunarflug býðst til Ísrael,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK