Meiri halli en allt árið í fyrra

Hallinn á vöruskiptum við útlönd fyrstu sjö mánuði ársins var 108,9 milljarðar króna sem er meiri halli en allt síðasta ár en þá nam halli á vöruskiptum 108,2 milljörðum króna.

Í júlí voru fluttar út vörur fyrir 35,7 milljarða króna og inn fyrir 58,6 milljarða króna fob (62,5 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob-verðmæti, voru því óhagstæð um 22,8 milljarða króna. Í júlí 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 9,8 milljarða króna á gengi hvors árs. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands. 

Janúar-júlí 2017 voru fluttar út vörur fyrir 280,0 milljarða króna en inn fyrir 388,8 milljarða króna fob (414,4 milljarða króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 108,9 milljörðum króna, reiknað á fob-verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 20,3 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn janúar-júlí 2017 var því 88,6 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður. Einnig var hann hærri en halli alls ársins 2016, sem nam 108,2 milljörðum króna á gengi ársins 2016. 

Iðnaðarvörur voru 55,7% alls útflutnings

Janúar-júlí 2017 var verðmæti vöruútflutnings 38,9 milljörðum króna lægra, eða 12,2% á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,3% lægra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 37,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 23,9% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum. 

Janúar-júlí 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 49,8 milljörðum króna hærra, eða 14,7% á gengi hvors árs, en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á hrá- og rekstrarvörum, skipum, eldsneyti, fjárfestingavöru og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK