Deilibílaþjónustan Zipcar á Íslandi opnar fyrir nýskráningar þann 18. september í Háskólanum í Reykjavík. Nú þegar hefur tveimur stæðum við háskólann verið úthlutað fyrir þjónustuna en eftir því sem líður á veturinn bætast við fleiri stæði í bænum.
Í lok júní var greint frá fyrirætlunum bílaleigunnar Avis Budget á Íslandi um að bjóða deilibílaþjónustu innan borgarmarkanna undir merkjum bandarísku deilibílaþjónustunnar Zipcar sem er sú stærsta í heimi.
Hugmyndin gengur út á að notendur geti nálgast bíla til að nýta í stuttar ferðir. Greidd eru mánaðarlegt áskrifargjald og aksturgjald fyrir hvern klukkutíma en Zipcar sér um tryggingar, viðhald og eldsneyti. Þjónustan verður aðgengileg gegnum smáforrit og þurfa notendur að skila bílunum aftur í sama stæði.
Zipcar var stofnað um aldamótin en árið 2013 keypti Avis Budget Group fyrirtækið fyrir 500 milljónir Bandaríkjadala. Síðan þá hefur fyrirtækið verið í örum vexti og er nú með starfsemi í meira en 500 borgum í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu.