Ráðinn framkvæmdastjóri á fjármálasviði Alvotech

Kristján Jakobsson, framkvæmdastjóri á fjármálasviði Alvotech.
Kristján Jakobsson, framkvæmdastjóri á fjármálasviði Alvotech.

Kristján Jakobsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri á fjármálasviði líftæknifyrirtækisins Alvotech. Kristján mun leiða uppbyggingu á fjármálasviði Alvotech samstæðunnar og vinna náið með forstjóra og öðrum lykilstjórnendum fyrirtækisins.

Kristján hefur síðastliðin 13 ár starfað hjá Actavis, m.a. sem framkvæmdastjóri fjármála þróunarsviðs í Sviss, og hefur því víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun alþjóðlegra lyfjafyrirtækja. Kristján er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði Háskóla Íslands frá árinu 2002, að því er fram kemur í tilkynningu.

Kevin Bain er fjármálastjóri Alvotech og hefur umfangsmikla reynslu af fjármálastjórnun alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og hefur starfað hjá Alvogen síðan árið 2009 og var áður hjá Actavis um langt skeið.

Hjá Alvotech starfa 215 vísindamenn á Íslandi, í Þýskalandi og í Sviss sem vinna að þróun líftæknilyfja. Skóflustunga var tekin að nýju hátæknisetri systurfyrirtækjanna Alvotech og Alvogen í október 2013 og fyrirtækið vinnur nú að þróun sjö líftæknilyfja, segir ennfremur í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK