Deilibílaþjónustunni Zipcar á Íslandi var hleypt af stokkunum við Háskólann í Reykjavík í dag og varð Reykjavík þar með fyrsta borgin á Norðurlöndunum þar sem boðið er upp á þjónustu fyrirtækisins.
Hugmyndin gengur út á að notendur geti nálgast bíla til að nýta í stuttar ferðir og geta meðlimir Zipcar bókað bíl eftir þörfum með appi allan sólarhringinn. Bíllinn er bókaður með Zipcar-appinu og skilað aftur á sama stæðið þegar notkun lýkur.
Fyrst um sinn verða fjórir Zipcar-bílar af gerðinni Hyundai i-10 aðgengilegir á sérstaklega merktum stæðum við Háskólann í Reykjavík og Landspítalann en búast má við fjölgun Zipcar bíla á næstunni þar sem búið er að sækja um séstök bílastæði fyrir bílana hjá Reykjavíkurborg í samræmi við nýlega samþykktan ramma um deilibílaþjónustu í borginni, að því er kemur fram í tilkynningu frá Zipcar.
Fyrirtækið hefur undirritað samstarfssamning við Orku náttúrunnar um rekstur og umsjón hleðslustöðva fyrir Zipcar-rafbíla. Haft er eftir Áslaugu Thelmu Einarsdóttur, forstöðumanns einstaklingsmarkaða ON, að mikil ánægja sé samstarfið sem sé mikilvægt skref til þess að hraða þessari þróun.
Greidd eru mánaðarlegt áskrifargjald, 500 krónur, og aksturgjald fyrir hvern klukkutíma sem bíllinn er nýttur en Zipcar sér um tryggingar, viðhald og eldsneyti.
Zipcar var stofnað um aldamótin en árið 2013 keypti Avis Budget Group fyrirtækið fyrir 500 milljónir Bandaríkjadala. Síðan þá hefur fyrirtækið verið í örum vexti og er nú með starfsemi í meira en 500 borgum í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu.
Í tilkynningunni er vitnað í rannsóknir frá Bandaríkjunum sem munu hafa sýnt að hver deilibíll komi í stað 13 einkabíla á götunum og minnki því útblástur frá bílaumferð umtalsvert. Þá geti notendur sparað töluvert af eldsneyti og minnkað kolefnisfótspor sitt um allt að 500 kg ári.