Fjármálaeftirlitið hóf athugun á stofnun óumbeðinna krafna í netbanka hjá viðskiptabönkunum þremur og taldi ekki tilefni til að gera athugasemdir við starfshætti bankanna í þeim efnum.
Í niðurstöðum athugunarinnar segir að athugunin hafi beinst að upplýsingum um reglur og skilmála um stofnun valgreiðslukrafna í netbanka.
Athugunin beindist að upplýsingum og reglum um stofnun valgreiðslukrafna í netbanka og upplýsingum um birtingarhátt valgreiðslukrafna í netbanka hjá hverjum banka fyrir sig. Í athugun FME voru verkferlar hjá hverjum banka fyrir sig skoðaðir ásamt því að óskað var eftir upplýsingum um hvernig eftirlitið væri með framangreindum atriðum hjá bönkunum.
Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í júlí 2017 en að teknu tilliti til þeirra gagna og upplýsinga sem FME aflaði við athugun þessa taldi eftirlitið ekki tilefni til að gera athugasemdir við starfshætti við stofnun óumbeðinna krafna í netbönkum bankanna.