Guide to Iceland kaupir Bungalo

Xiaochen Tian og Guðmundur Lúther Hallgrímsson
Xiaochen Tian og Guðmundur Lúther Hallgrímsson Ljósmynd/Aðsend

Guide to Iceland hefur keypt allt hlutafé fyrirtækisins Bungalo ehf. sem verður áfram rekið sem sjálfstætt félag en starfsemi Bungalo hefur alfarið flust til höfuðstöðva Guide to Iceland í Borgartúni. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu fré félögunum.

Viðræður hafa staðið yfir um nokkurra mánaða skeið en samkomulag um kaupin náðist nýverið. Bungalo ehf. heldur úti vefsíðunni bungalo.com sem sérhæfir sig í útleigu íslenskra sumarbústaða en Guide to Iceland starfræki vefsíðuna guidetoiceland.is þar sem íslenskum ferðaþjónum gefst kostur á að koma vörum sínum og þjónustu á framfæri við umheiminn. 

„Við hjá Bungalo erum afar ánægð með að hafa náð samkomulagi við Guide to Iceland sem hefur vaxið hratt síðustu ár. Guide to Iceland hefur mjög færa stjórnendur og starfsmenn innanborðs og ég er því sannfærður um að þessar breytingar muni stuðla að áframhaldandi vexti Bungalo,“ er haft eftir Guðmundi Lúther Hallgrímssyni, framkvæmdastjóra Bungalo, í tilkynningunni, en hann mun áfram gegna þeirri stöðu undir nýju eignarhaldi.

Xiaochen Tian, framkvæmdastýra Guide to Iceland, segist ánægð með kaupsamninginn og að hún hlakki til að styrkja Bungalo enn frekar innan Guide to Iceland-samsteypunnar. 

„Við munum geta nýtt einstakt sumarhúsaúrval Bungalo til að bjóða viðskiptavinum Guide to Iceland hagkvæma og einstaka upplifun á Íslandi,“ segir hún. „Á sama tíma hefur skapast tækifæri til að bjóða sumarhúsaeigendum enn betri kjör og aukna möguleika til útleigu. Það eru því spennandi tímar framundan hjá báðum félögum, ásamt öllum þeim sem hyggjast nýta þessa þjónustu sér til hæginda, tekjuöflunar og yndisauka,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK