Alþingi var óheimilt að skerða atvinnuleysisbótarétt þeirra sem þegar höfðu virkjað rétt sinn fyrir 1. janúar 2015. Þetta kom fram í dómi Hæstaréttar 1. júní sl. um styttingu á bótatímabili atvinnuleysistrygginga úr 36 mánuðum í 30 mánuði.
Vinnumálastofnun komst að því að rúmlega 2.300 manns kynnu að eiga rétt á lengingu á tryggingatímabili sínu og/eða afturvirkum greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli dómsins. Strax í júní lengdi Vinnumálastofnun bótatímabil 1.175 einstaklinga, sem þáðu atvinnuleysistryggingar, úr 30 mánuðum í 36 mánuði. Þetta fólk átti ekki rétt til greiðslu afturvirkra atvinnuleysisbóta, samkvæmt frétt Vinnumálastofnunar.
Í kjölfarið var haft samband við 1.181 einstakling sem talið var að kynni að eiga rétt á afturvirkum greiðslum atvinnuleysisbóta eða lengingu á bótatímabili sínu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.