Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,6% í október. Atvinnuþátttaka nam 82%.
Samanburður mælinga hjá Hagstofunni fyrir október 2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátttaka fólks stendur í stað. Þó að starfandi fólki hafi fjölgað um 4.900 lækkaði hlutfall þess af mannfjölda um 0,8 prósentustig.
Atvinnulausir eru um 2.000 fleiri en á sama tíma árið 2016 og hlutfall þeirra jókst um 0,9 prósentustig. Alls voru 44.300 utan vinnumarkaðar og fjölgaði þeim um 1.700 manns frá því í október 2016 en þá voru þeir 42.600.