Áætlanir Nespresso á Íslandi um að opna verslun í Kringlunni hafa gengið eftir og hefur nú verið tilkynnt um opnun á fyrstu dögum desembermánaðar.
Verslunarrýmið sem um ræðir er þar sem Top Shop var áður með rekstur. Opnun verslunarinnar er í samstarfi við umboðsaðila Nespresso á Íslandi, Perroy ehf., sem hefur einkarétt á rekstri og dreifingu varanna hér á landi.
Áður hefur komið fram að Nepresso áformi að hafa skilakassa fyrir kaffihylkin á nokkrum stöðum þannig að viðskiptavinir eigi auðveldara með að endurvinna.
Höfuðstöðvar Nespresso eru í Lausanne í Sviss en fyrirtækið er með starfsemi í 69 löndum og hefur yfir 12.000 manns í vinnu. Á árinu 2016 rak fyrirtækið yfir 600 verslanir.