Fyrirtækið Saltverk Reykjaness hefur verið úrskurðað gjaldþrota en það framleiddi salt árin 2011 til 2012 með því að hita sjó með jarðvarma en seldi síðan eignir síðna í kjölfar deilna miklli hluthafa.
Enn er starfandi félag sem heitir Saltverk ehf. sem hefur selt vörur og framleitt undir vörumerki Saltverks frá árinu 2013.
Stofnendur félagsins reistu saltverksmiðju á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp árið 2011 þar sem á árunum 1770 til 1794 var framleitt salt með svipaðri aðferð.
Árið 2012 var greint frá því að fyrirtækið hygðist hefja sölu á kristalsjávarsalti sínu til Danmerkur næsta haust og fylgja þannig eftir góðum viðtökum hér á landi. Stefnt var að því að framleiða 20 tonn af salti á ári.