Kristín Ögmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Borgarleikhússins. Auglýst var eftir umsóknum í starfið í október sl. en alls bárust 37 umsóknir um starfið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikhúsinu.
Kristín er hagfræðingur frá University of Wisconsin í Bandaríkjunum og með mastersgráðu í fjármálum frá Cass Business School í London Bretlandi. Undanfarin fjögur ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins. Þar áður vann Kristín hjá LVMH Christian Dior og Aurum Holdings í London.
„Starfið leggst mjög vel í mig. Ég hef unnið hjá Íslenska dansflokknum s.l. 4 ár og þekki því húsið vel og marga sem hér vinna. Starfið sjálft verður án efa krefjandi en um leið líflegt og spennandi. Borgarleikhúsið hefur iðað af lífi undanfarin ár og það verður gaman að taka þátt í því góða starfi sem þar er unnið,“ er haft eftir Kristínu í tilkynningunni.