Flugliðar hjá WOW air hafa fellt kjarasamning sem gerður var milli Flugfreyjufélags Íslands og WOW air í byrjun mánaðar og sem átti að gilda til tveggja ára.
Rafræn atkvæðagreiðsla fór fram í vikunni og höfnuðu 53,73%, eða 164, samningnum en 143 sögðu já eða 45,98%. 4 tóku ekki afstöðu, eða 1,29%.
Orri Þrastarson, varaformaður Flugfreyjufélags Íslands, segir það hafa komið sér á óvart að samningurinn væri felldur.
„Núna hafa félagsmenn talað og meirihluti þeirra hefur fellt samninginn og við verðum að lúta þeirri niðurstöðu og halda áfram að þar sem frá var horfið,“ segir Orri.
Næstu skref verði væntanlega að kalla eftir afstöðu frá félagsmönnum og fá að heyra hvað megi betur fara.
„Í framhaldinu munum við svo að sjálfsögðu setjast aftur að samningaborðinu með WOW air.“